Tilkynningar
Heimsókn stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar til Noregs
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis heimsækir Osló dagana 17.–19. október 2022. Nefndin mun kynna sér störf systurnefndar sinnar hjá Stórþinginu, eftirlits- og stjórnskipunarnefndarinnar (n. kontroll- og konstitusjonskomiteen).
Þá mun nefndin eiga fund með starfsfólki eftirlits- og stjórnskipunarnefndarinnar. Jafnframt mun íslenska nefndin eiga fundi bæði með umboðsmanni Stórþingsins og ríkisendurskoðun.